5.7.2007 | 01:53
Þeir standa allir saman
Múslimar meiga eiga það að þeir standa ávalt saman. Við vesturbúar erum alltaf að líta á Íslamstrú sem aðeins trúarbrögð en þetta eru reglur og pólitk. Bush, Blair og fl. segja að þeir séu ekki í stríði við Íslam og segja það þetta sé friðsöm trú sem hver og einn kýs. Það gat hvaða manneskja í heiminum séð að þegar bandamenn ákveða að fara inní Írak þá eru þeir að fara í stríð við Íslam. Þannig ekki kemur mér á óvart a Ayman hvetji undir þetta trúarstríð sem er í gangi þrátt fyrir að bandamenn sjái það ekki. Við erum í krossferð það er það sem margir múlimar sjá og þeim skjátlast ekki.
kv. Arnór
![]() |
Al-Zawahiri hvetur múslima til að styðja íslamista í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.7.2007 | 01:37
Bjarni Guðjónsson skúrkur eða hetja
Bjarni Guðjónsson sem skoraði eitt óíþróttamannlegasta mark í sögu íslenskar knattspyrnu er líklega að spyrja sig núna hvort hann hafi tekið rétta ákvörðun. Hægt er að horfa á málið frá tveim hliðum eins og mörgum öðrum málum.
Bjarni er líklega ekki sá vinsælasti í augum Keflvíkinga eins og er og ef hann vill komast í flug einhverntíman á næstu árum þarf að hann að keyra framhjá Keflavík og ekki vill Bjarni neitt slíkt á meðan Keflvíkingar eru með svona haturslegar tilfinningar gagnvart honum. Það sem leikmaðurinn þarf að gera er að játa á sig sökina núna þegar hitin er aðeins farinn að lækka og biðja alla Keflvíkinga afsökunar og einnig myndi það ekki eyðileggja að faðir Bjarna, þjálfari Guðjón Þórðason myndi leggja stolt sitt til hliðar og biðjast afsökunar á hvernig hann fór með liðið í byrjun síðasta tímabils. Tala ég núna sem Keflvíkingur og ég heyrði sjálfan mig segja að ég ætlaði að safna fúleggjum og kasta í Bjarna þegar hann kæmi til Keflavíkur að spila heimaleikinn en ég hef róast niður. Í guðanna bænum Bjarni ekki reyna að segja að þú hafir ekki hitt boltann ekki eftir að þú varst að koma úr atvinnumennskunni allaveganna ef Bjarni ætlar grafa þetta án stiganna þriggja.
Skagamenn eru líklega ekki stoltir af Bjarna en líta líklega á þetta þannig að Bjarni myndi gera allt til þess að eigna liði sínu þrjú stigin og kanski elska hann fyrir vikið. Ekki er skrítið að Bjarni elski lið sitt þar sem ásamt Bjarna spilar bróðir hans Þórður og faðir þeirra þjálfar, eini úr fjöskyldunni sem vantar er Jói Kalli. En í guðanna bænum Skagamenn ekki reyna að afsaka þetta með lélegum afsökunum því Keflvíkingar taka þær aldrei í mál. Biðjist afsökunar og byrjiði á að grafa þetta mál eins djúpt niður með að láta sjást að þið skammist ykkar fyrir þessa hegðun.
Kv. Arnór
![]() |
Skagamenn lögðu Keflvíkinga á dramatískan hátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)